(Genf, 17 júní 2011) Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur unnið þrekvirki sem markar söguleg tímamót við að gæta meginreglnanna í mannréttindayfirlýsingu (UDHR) Sameinuðu þjóðanna, með samþykkt ályktunar um mannréttindabrot vegna kynhneigðar og kynvitundar (L .9/Rev.1).
Ályktunin sem kynnt var af Suður-Afríku ásamt Brasilíu ásamt 39 öðrum samstarfslöndum frá öllum heimshlutum, var samþykkt með 23 atkvæðum í hag, 19 á móti en 3 sátu hjá. Listi yfir hvernig ríkin kusu er í fylgiskjali. Í kynningu sinni fyrir ráðinu, minnti Suður-Afríka á að í UDHR er tekið sérstaklega fram að "hver maður skal eiga kröfu á réttindum og frjálsræði og skal þar engan greinarmun gera" og Brasilía kallaði eftir að að ráðið "opnaði dyrnar að viðræðum sem lengi hafa verið lokaðar".
Ályktunin í dag er fyrsta ályktun SÞ í sögunni þar sem sérstök áhersla er lögð á mannréttindabrot vegna kynhneigðar og kynvitundar og er í framhaldi af sameiginlegri yfirlýsingu um þessi mál sem gefin var út á fundi ráðsins í mars. Hún staðfestir algild mannréttindi og tekur til greina áhyggjur vegna ofbeldisverka og mismununar á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Stuðningur Mannréttindaráðsins sendir mikilvægt merki um stuðning við verjendur mannréttinda sem vinna að þessum málum, og viðurkennir lögmæti starfs þeirra.
"Suður-Afríkska ríkisstjórnin hefur nú boðið framsækna forystu, eftir margra ára áhyggjur og ósamræmi í afstöðu til kynhneigðar og kynvitundar. Samtímis því hefur ríkisstjórnin sett sér markmið á alþjóðasviði. Við hlökkum til að stuðla að og styðja framsækna forystu þessarar ríkisstjórnar og sjá endi á þeim brotum sem við stöndum daglega frammi fyrir". (Dawn Cavanagh, hjá Samtökum Afrískra Lesbía)
Ályktunin fer fram á að Mannréttindastofnun S.Þ. undirbúi rannsókn á ofbeldi og mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar og kallar á pallborðsumræður sem haldnar verða í Mannréttindaráðinu til að ræða niðurstöður rannsóknarinnar á uppbyggilegan og gagnsæjan hátt og að íhuga viðeigandi eftirfylgni.
"Að við skulum vera að fagna útgáfu ályktunar Sameinuðu þjóðanna um mannréttindabrot á grundvelli kynhneigðar er ótrúlegt, en sú staðreynd að kynvitund er tiltekin sérstaklega, sýnir svo ekki verður um villst að þetta er mikilvæg stund og rík ástæða til að gleðjast," bætti Justus Eisfeld, varaframkvæmdastjóri GATE. "Mannréttindaráðið hefur tekið sögulegt stigið skref áfram með því að viðurkenna að lesbíur, hommar, trans * og tvíkynhneigt fólk séu meðal þeirra berskjölduðustu vegna þess að þau semja sig ekki að ríkjandi siðum og venjum á sviði kynhneigðar og kynvitundar og gefur til kynna með afgerandi hætti að ríkjum beri skylda til að vernda okkur gegn ofbeldi. "
"Eins og bæði samningsaðilar, sérstök málsmeðferð SÞ ásamt dómstólum hafa ítrekað viðurkennt, er mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar, bönnuð samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum ." (Alli Jernow, Alþjóðanefnd Lögfræðinga)
Ályktunin er í samræmi við aðra svæðisbundna og innlenda lögspeki, og rétt í þessari viku, er í Stjórnmálayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um HIV og alnæmi 2011, lýst yfir viðurkenningu á nauðsyn þess að fjalla um mannréttindi karla sem stunda kynlíf með körlum og hafa Samtök Ameríkuríkja samþykkt samhljóða ályktun um að fordæma ofbeldi og mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar.
Fyrr á þessum 17. fundi Mannréttindaráðsins, tilkynnti frú Rashida Manjoo, Umboðskona Sameinuðu þjóðanna í ofbeldismálum að:
"þættir sem stuðla að hættu á ofbeldi eru stakir þættir í líkamlegu yfirbragði eða eiginleikum kvenna svo sem kynþáttur, litarháttur, vitsmunaleg og líkamleg geta, aldur, tungumálakunnátta og mælska, þjóðarbrot og kynhneigð."
Skýrslan fór einnig ítarlega í nokkurn fjölda brota sem framin hafa verið gegn lesbíum, tvíkynhneigðum og trans konum, þar með talin tilvik um nauðganir, árásir og morð. Því er það miður að tilvísun í "konur sem þurfa að þola ofbeldi sem tengist kynverund þeirra" var fjarlægð úr endanlegri útgáfu annarrar ályktunar um áherslu á afnám ofbeldis gegn konum á sama fundi.
"Þrátt fyrir þetta ósamræmi, treystum við að ályktun S.Þ. um kynhneigð og kynvitund muni auðvelda samþættingu alhliða kynferðislegra réttinda í öllu starfi Sameinuðu Þjóðanna." (Meghan Doherty, Sexual Rights Initiative)
Öflug yfirlýsing borgarasamfélagsins var afhent í lok þingsins, sem þakkaði fyrir ályktunina og ítrekaði þann ásetning borgarasamfélagsins að halda áfram að eiga samskipti við Sameinuðu þjóðirnar í því skyni að tryggja að allir einstaklingar séu meðhöndlaðir sem frjálsir og jafnir öðrum að virðingu og réttindum, þar á meðal á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar.
"Nú er starf okkar er rétt að byrja", sagði Kim Vance frá ARC International. "Við hlökkum til að fá skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alsherjarnefndarinnar í mars næstkomandi, sem og til frekari viðræðna við, og stuðnings frá, þeim ríkjum sem enn ekki gátu stutt ályktunina, en deila áhyggjum alþjóðasamfélagsins á þessum kerfisbundnu mannréttindabrotum. "
Þýðing: Anna Jonna Ármannsdóttir
ARC International, John Fisher (Geneva) +41 79 508 3968 or john [at] arc-international [dot] net
Amnesty International, Peter Splinter (Geneva) +41 (0) 22 906 9483 or Emily Gray (London) +44 (0) 20 7413 5865
CAL - Coalition of African Lesbians, Dawn Cavanagh (South Africa) + 27 11 918 6115 or dawn [at] cal [dot] org [dot] za
COC Nederland, Björn van Roozendaal (Netherlands) +31 6 22 55 83 00 or BvanRoozendaal [at] coc [dot] nl
Council for Global Equality, Mark Bromley (Washington) +1.202.719.0511 or Mark [at] globalequality [dot] org
GATE - Global Action for Trans* Equality, Justus Eisfeld (New York) jeisfeld [at] transactivists [dot] org, +1-646-341-1699 or Mauro Cabral (Argentina) mcabral [at] transactivists [dot] org or +54 9 351 5589876
Heartland Alliance for Human Needs & Human Rights,
Stefano Fabeni (Washington) +1 312-919-3512 or sfabeni [at] heartlandalliance [dot] org
Human Rights Watch, Siphokazi Mthathi (South Africa)
mthaths [at] hrw
[dot] org or + 27 82 777 1319/ +27 11 484 2640 or Juliette De
Rivero (Geneva) +41 079 640 1649 or derivej [at] hrw [dot]
org
IDAHO - International Day Against Homophobia and
Transphobia, Joel Bedos (France) jbedos [at] dayagainsthomophobia [dot] org
IGLHRC - International Gay and Lesbian Human Rights
Commission, Jessica Stern (New York) + 1 212 430 6014 (office), +
1 646 549 0130 (mobile) or jstern
[at] iglhrc [dot] org
ILGA- the International Lesbian, Gay, Bisexual, Trans and Intersex Association, Renato Sabbadini, +32 474 857 950 or renato [at] ilga [dot] org
International Campaign Stop Trans Pathologization STP 2012,
Amets Suess, stp2012 [at]
gmail [dot] com
International Commission of Jurists, Alli Jernow
(Geneva) +41(0)22 979 3800) or allison
[dot] jernow [at] icj [dot]
org
Sexual Rights Initiative, Meghan Doherty, Sexual Rights
Initiative, +41 (0)78 871 6713 or meghan [at] acpd [dot]
ca
Thailand's Sexual Diversity Network, Paisarn
Likhitpreechakul +66 81 634 3450 or forsogi [at] gmail [dot]
com
Transgender Europe (TGEU), Carla LaGata (Germany), mana [at] zedat [dot] fu-berlin [dot] de
Attachment (Records of Vote and Co-Sponsorship)
Ríkin sem studdu ályktunina: Argentina, Belgium, Brazil, Chile, Cuba, Ecuador, France, Guatemala, Hungary, Japan, Mauritius, Mexico, Norway, Poland, Republic of Korea, Slovakia, Spain, Switzerland, Ukraine, Thailand, UK, USA, Uruguay
Ríkin sem voru gegn ályktuninni: Angola, Bahrain, Bangladesh, Cameroon, Djibouti, Gabon, Ghana, Jordan, Malaysia, Maldives, Mauritania, Nigeria, Pakistan, Qatar, Moldova, Russian Federation, Saudi Arabia, Senegal, Uganda.
Hjá sátu: Burkina Faso, China, Zambia Fjarverandi: Kyrgyzstan, Libya (suspended)
Meðflutningsríki tillögunnar: Albania, Argentina, Australia, Austria, Belgium, Bolivia, Brazil, Canada, Chile, Colombia, Croatia, Cyprus, Czech Republic, Denmark, Estonia, Finland, France, Germany, Greece, Honduras, Iceland, Ireland, Israel, Italy, Luxembourg, Netherlands, New Zealand, Norway, Poland, Portugal, Romania, Serbia, Slovenia, South Africa, Spain, Sweden, Switzerland, Timor-Leste, United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland, United States of America, and Uruguay.
[IGLHRC_2011] (2011). Historic Decision at the United Nations . Human Rights Council Passes First-Ever Resolution on Sexual Orientation and Gender Identity. 2011,